Fotbolti.net
01.08.23 - 15:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brynjar Björn tekur við Grindavík (Staðfest)

Mættur í Grindavík.

Mættur í Grindavík.

Canon

Mynd: Grindavík

Lengjudeildin
Grindavík hefur staðfest það að Brynjar Björn Gunnarsson sé tekinn við þjálfun karlaliðs félagsins af Helga Sigurðssyni sem sagði starfi sínu lausu í gær.

Brynjar Björn skrifar undir samning við Grindavík sem gildir út næsta tímabil. Hann mun stýra liðinu gegn Vestra á morgun.
Það var greint frá því fyrst hér á Fótbolta.net fyrr í dag að Brynjar væri að taka við liðinu.

Grindavík hefur gengið brösulega í Lengjudeildinni upp á síðkastið og ekki unnið leik síðan þeir unnu Ægi á útivelli 22. júní. Liðið er í 10. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá fallsæti en fyrir mótið var búist við að Grindavík myndi berjast komast upp í efstu deild. Þeir eru hinsvegar líka fjórum stigum frá 5. sætinu sem er umspilssæti fyrir Bestu-deildina þetta árið.

Brynjar Björn er með reynslu í því að stýra liði upp úr Lengjudeildinni en hann kom HK upp úr henni árið 2018. Brynjar er fyrrum landsliðsmaður og atvinnumaður, lék meðal annars með Reading í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur einnig þjálfað erlendis en hann stýrði Örgryte í Svíþjóð á síðasta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.