Sheffield United kaupir varnarmann frá Arsenal (Staðfest)

Trusty í landsleik með Bandaríkjunum.

Mynd: EPA

Trusty í landsleik með Bandaríkjunum.

Mynd: EPA
Sheffield United hefur keypt varnarmanninn Auston Trusty frá Arsenal, þessi 24 ára bandaríski landsliðsmaður var hjá Birmingham City á lánssamningi á síðasta tímabili þar sem hann var valinn leikmaður ársins.
„Ég hlakka til að spila í ensku úrvalsdeildinni og sýna hvað ég get. Ég er spenntur og rúmlega það. Tækifærið að vera hérna hjá þessu sögufræga félagi og spila í ensku úrvalsdeildinni er eitthvað sem ég gat bara látið mig dreyma um sem krakki," segir Trusty.
Paul Heckingbottom stjóri Sheffield United segist í skýjunum með þennan nýja leikmann, það hafi verið markmiðið að bæta við varnarmanni.
Trusty kom til Arsenal 2022. eftir að hafa yfirgefið Colorado Rapids, en spilaði ekki neinn mótsleik fyrir félagið.

Welcome to the Blades, Auston Trusty! ?????????? pic.twitter.com/JCL8JWxILo
— Sheffield United (@SheffieldUnited) August 3, 2023