Bishop frá Man Utd til Sunderland (Staðfest) - Bruno kveður með smá skoti

Nathan Bishop

Mynd: Sunderland

Nathan Bishop

Mynd: Sunderland
Sunderland tilkynnti í gær um komu Nathan Bishop frá Manchester United. Kaupverðið er óuppgefið.
Nathan Bishop er 23 ára enskur markvörður sem gekk í raðir Man Utd árið 2020. Hann lék ekki keppnisleik með United en var fjórum sinnum á bekknum á síðasta tímabili.
Sunderland er í ensku Championship deildinni.

Bruno Fernandes, fyrirliði United, kvaddi Bishop á samfélagsmiðlum í gær.
„Þú átt það besta skilið! Hvílíkur einstaklingur sem þú ert og fagmaður. Þín verður saknað af öllum, og ég veit að þú munt sakna þess að láta mig rústa þér á æfingum. Ég óska þér alls hins besta í framtíðinni og þú verður að muna það sem ég sagði þér," skrifaði Bruno á Instagram.

Bruno Fernandes sends his farewells to departing goalkeeper Nathan Bishop, you can tell he's our captain ???????? #mufc pic.twitter.com/bgdPxzQHEf
— Man United News (@ManUtdMEN) August 3, 2023