WBA fær Maja frá Bordeaux (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Josh Maja, ein af stjörnunum í sjónvarpsþáttaseríunni 'Sunderland 'Till I die' sem vakti mikla athygli á Netflix, er kominn aftur til Englands eftir nokkur ár í Frakklandi.
Maja er 24 ára og fæddur á Englandi en hann á einn landsleik að baki fyrir Nígeríu.

Hann skoraði fimmtán mörk í 24 deildarleikjum með Sunderland tímabilið 2018-19 þegar liðið var í C-deildinni. Hægt var að sjá uppgang Maja í sjónvarpsþáttunum.
Hann fór í kjölfarið til Bordeaux í Frakklandi og skoraði alls 29 mörk í 93 leikjum með liðinu. Á síðasta tímabili skoraði hann sextán mörk og lagði upp sex mörk þegar liðinu mistókst að fara upp í efstu deild.
WBA er í ensku Championship deildinni. Maja, sem er 24 ára, skrifar undir þriggja ára samning við félagið.