Fotbolti.net
02.08.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rúmenskur sóknarmaður í Dalvík/Reyni (Staðfest)

Rúmenskur sóknarmaður í Dalvík/Reyni (Staðfest)
Canon

Mynd: Dalvík/Reynir

Dalvík/Reynir hefur nælt í Andrei Apostu en hann er 21 árs gamall Rúmeni. Hann gerir samning út tímabilið.

Hann er fjölhæfur sóknarmaður og kemur til liðsins frá Spáni. Hann lék síðast með Fuenlabrada Promesas Madrid 2021 í fimmtu efstu deild á Spáni.

Hann kemur til með að aðstoða liðið í 2. deild þar sem Dalvík/Reynir er í hörku toppbaráttu. Liðið situr í 2. sæti aðeins tveimur stigum á eftir toppliði KFA.

Toppliðin mætast einmitt í Fjarðabyggðahöllinni á morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.