Fotbolti.net
02.08.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Fram fær Ólínu og Telmu (Staðfest)

Ólína í leik með Stjörnunni

Ólína í leik með Stjörnunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Fram hefur nælt í tvo nýja leikmenn til að styrkja hópinn fyrir endasprettinn í Lengjudeild kvenna sem framundan er.

Ólína Ágústa Valdimarsdóttir gengur til liðsins frá Stjörnunni á láni og Telma Steindórsdóttir frá HK einnig á láni.

Ólína er 18 ára sóknarsinnaður miðjumaður en hún hefur reynslu úr Bestu deildinni þar sem hún lék með KR síðasta sumar. Hún kom við sögu í 10 leikjum og skorað eitt mark.

Þá hefur hún komið við sögu í fjórum leikjum í Bestu deildinni í sumar hjá Stjörnunni.

Telma er aðeins 17 ára gömul en hún hefur mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur. Hún lék sína fyrstu leiki með KH árið 2021 og var liðsfélagi Ólínu hjá KR í fyrra þar sem hún lék 8 leiki. Hún getur leyst allar stöður í öftustu línu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.