Salisu til liðs við Monaco (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Mohammed Salisu er genginn til liðs við Monaco frá Southampton. Þessi 24 ára gamli Ganverji gerir fimm ára samning við félagið.
Hann lék þrjú tímabil með Southampton í ensku úrvalsdeildinni. Hann gekk ungur að árum til Valladolid á Spáni og lék eitt tímabil í aðalliðinu áður en hann færði sig til Englands.
Hann lék 80 leiki fyrir Southampton.
Salisu hefur skorað tvö mörk í sex leikjum fyrir landslið Gana en annað þeirra kom á HM í Katar í 3-2 sigri gegn Suður Kóreu.
Welcome to AS Monaco, Mohammed Salisu! ???????? pic.twitter.com/6ASUaBxce8
— AS Monaco EN (@AS_Monaco_EN) August 1, 2023




