Fotbolti.net
01.08.23 - 17:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chelsea fær miðjumann frá Rennes (Staðfest)

Chelsea fær miðjumann frá Rennes (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hinn 19 ára gamli Lesley Ugochukwu er genginn til liðs við Chelsea frá Rennes í Frakklandi.

Ugochukwu er varnarsinnaður miðjumaður og er uppalinn í Rennes. Hann gerir sjö ára samning við Lundúnarliðið með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.

Hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Rennes 17 ára gamall þegar hann kom inn á sem varamaður í leik gegn PSG.

Hann var með stórt hlutverk í liðinu á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði 35 leiki í öllum keppnum. Rennes hafnaði í 4. sæti frönsku deildarinnar og komst í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.