Brighton lánar Undav til Stuttgart (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýski sóknarmaðurinn Deniz Undav mun spila með Stuttgart á láni frá Brighton út tímabilið en þetta staðfest enska félagið í gær.
Undav, sem er 27 ára gamall, skoraði 5 mörk í 22 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Hann hefur tekið þátt í undirbúningstímabilinu með Brighton og gert ágætlega en það er þó ekki pláss fyrir hann í plönum Roberto De Zerbi, stjóra Brighton.
Undav er nú farinn til Stuttgart á láni út tímabilið en De Zerbi óskar honum góðs gengis þar.
„Okkur þykir leitt að segja frá því en við höfum ákveðið að leyfa Deniz að fara og spila annars staðar. Hann var gríðarlega mikilvægur á síðasta ári og hjálpaði við að ná okkar markmiðum, en hann á tækifærið skilið, Við óskum honum góðs gengis með Stuttgart og við hlökkum til að fá hann aftur í lok tímabils,“ sagði De Zerbi.