Fotbolti.net
02.08.23 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Daníel Gylfa í Árbæ (Staðfest)

Daníel Gylfa í Árbæ (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Daníel Gylfason er genginn til liðs við Árbæ frá Keflavík.

Árbær leikur í 3. deild en Daníel hefur komið við sögu í 10 leikjum hjá Keflavík í Bestu deildinni. Hann lék síðast með liðinu gegn FH á mánudagskvöldið.

Daníel getur leyst allar stöðurnar fremst á vellinum en þessi þrítugi leikmaður er uppalinn hjá Keflavík auk þess að hafa spilað með Víði, Reyni S. og Kórdrengjum á sínum ferli.

Hann kemur til með að styrkja Árbæ í baráttunni í 3. deild. Hann er klár í slaginn en Árbær heimsækir Augnablik í Fífunni í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.