Fotbolti.net
01.08.23 - 22:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þorkell Þráins aftur í Ægi (Staðfest)

Þorkell Þráins aftur í Ægi (Staðfest)
Canon

Mynd: Ægir

Lengjudeildin

Þorkell Þráinsson er mættur aftur í Ægi. Hann er fyrrum fyrirliði félagsins og leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi.

Þorkell er uppalinn hjá félaginu en hann yfirgaf Þorlákshöfn og hélt til Stokkseyrar eftir síðasta tímabil. Hann lék þar 13 leiki í 5. deild. Hann á að baki 276 leiki í meistaraflokki.

Þorkell er klár slaginn fyrir mikilvægan leik Ægis á Selfossi á morgun.

„Keli yfirgaf okkur eftir síðasta tímabil og hafði félagið lagt númer 17 til hliðar af virðingu við hann, en eftir tíðindi dagsins þurfti auðvitað að ræsa Jóa í Jako til að græja sett á Kela, enda risa leikur á morgun og aldrei að vita nema að Keli eigi endurkomu á Selfossi í sínum fyrsta leik í Lengjudeildinni," segir í tilkynningu frá Ægi.

Ægir er á botni Lengjudeildarinnar, sjö stigum frá öruggu sæti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.