Rachel Avant annar leikmaðurinn sem FH sækir í glugganum (Staðfest)

Mynd: FH

Mynd: FH

FH hefur tilkynnt um komu þýska varnarmannsins Rachel Avant til félagsins.
Hún kemur til FH eftir að hafa síðast verið á mála hjá Nantes í Frakklandi. Hún hefur spilað í Frakklandi frá árinu 2020 en þar áður lék hún með Soyaux.

Ásamt því að leika í frönsku úrvalsdeildinni, þá hefur Avant einnig spilað í sænsku úrvalsdeildinni og í efstu deild í Þýskalandi.
Hún kemur til með að styrkja FH-liðið sem er að missa nokkra leikmenn út í háskólaboltann í Bandaríkjunum.
Avant getur spilað sinn fyrsta leik fyrir FH gegn Keflavík í næstu viku. Fimleikafélagið er sem stendur í fimmta sæti Bestu deildarinnar með 21 stig.
Avant er annar leikmaðurinn sem FH sækir í félagaskiptaglugganum en áður kom Alma Mathiesen, sem getur spilað á miðju og kanti, frá Stjörnunni.