Fotbolti.net
01.08.23 - 18:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mane til Al-Nassr (Staðfest)

Mane til Al-Nassr (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sadio Mane er genginn til liðs við Al-Nassr í Sádí-Arabíu frá Bayern Munchen. 

Sky Sports telur að Bayern fái 24 milljónir punda fyrir senegalska sóknarmanninn. Talið er að Mane fái 34 milljónir punda í laun.

Mane gekk til liðs við Bayern síðasta sumar eftir 6 ár hjá Liverpool þar sem hann vann ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina.

Hjá Al-Nassr eru leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, Marcelo Brozovic og Alex Telles.

Það er ljóst að þessi félagaskipti munu hjálpa Bayern að fjármagna kaup á Harry Kane framherja Tottenham.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.