Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25177 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR04.07.2023, 13:00

Collins til Brentford (Staðfest)

Nathan Collins hefur gengið í raðir Brentford frá Wolverhampton Wanderers. Hann skrifaði undir sex ára samning við félagið sem er með möguleika á að framlengja um tvö ár til viðbótar. Collins er 22 ára stór og stæðilegur miðvörður sem var hjá Úlfunum í eitt tímabil, hann kom til félagsins frá Burnley. Hann er keyptur á 23 milljónir punda og er því dýrasti leikmaður í sögu Brentford.

FRÉTTIR04.07.2023, 10:30

PAOK búið að finna arftaka Sverris (Staðfest)

William Troost-Ekong er að ganga í raðir PAOK og á þessi leikmaður Watford að fylla í skarðið sem Sverrir Ingi Ingason mun skilja eftir sig. Sverrir er að ganga í raðir danska félagsins FC Midtjylland og mun þar skrifa undir fimm ára samning. Sverrir hefur verið í stóru hlutverki í Grikklandi en félagið glímir við fjárhagsörðugleika og vill lækka launakostnað sinn og því er Sverrir á förum.

FRÉTTIR04.07.2023, 10:21

Ben Brereton Díaz til Villarreal (Staðfest)

Villarreal hefur staðfest kaup á Ben Brereton Díaz frá Blackburn Rovers á frjálsri sölu. Þessi 24 ára leikmaður hefur gert fjögurra ára samning við spænska félagið. Villarreal var að missa Nicolas Jackson til Chelsea en fær Sílemanninn til að fylla hans skarð. Brereton Díaz er sóknarmaður sem hefur skorað 38 mörk í 99 leikjum síðustu tvö tímabil með Blackburn í Championship-deildinni. Hann hefur spilað 20 landsleiki fyrir Síle og skorað 7 mörk. Hann býr bæði yfir hraða og krafti en auk þess að spila í fremstu víglínu þá getur hann spilað á vængnum og er góður að klára færi.

FRÉTTIR03.07.2023, 16:24

Brozovic orðinn samherji Ronaldo hjá Al-Nassr (Staðfest)

Króatíski miðjumaðurinn Marcelo Brozovic hefur gengið í raðir Al-Nassr í Sádi-Arabíu en þar verður hann samherji Cristiano Ronaldo. Hann er keyptur á um 18 milljónir evra. Brozovic er þrítugur og var í byrjunarliði Inter í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í júní þar sem ítalska liðið tapaði 1-0 gegn Manchester City. Hann hefur verið síðustu átta ár í ítalska boltanum. Barcelona sýndi honum áhuga núna en gat ekki jafnað tilboðið frá Sádi-Arabíu.

FRÉTTIR03.07.2023, 16:18

Al Ettifaq kynnir Gerrard sem nýjan stjóra (Staðfest)

Steven Gerrard hefur skrifað undir samning við Al Ettifaq í Sádi-Arabíu og er nýr stjóri liðsins. Í síðasta mánuði hafnaði hann tilboði frá félaginu en tók síðan U-beygju og eftir viðræður síðustu daga hefur hann ákveðið að skrifa undir. Gerrard er fyrrum leikmaður enska landsliðsins og Liverpool en hann lagði skóna á hilluna 2016.

FRÉTTIR03.07.2023, 12:08

Verbruggen til Brighton (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur fengið til sín hollenska U21 landsliðsmarkvörðinn Bart Verbruggen frá Anderlecht. Hann er tvítugur og hefur skrifað undir fimm ára samning. <i>„Ég er hæstánægður með að fá Bart. Hann er vanur því að spila fótbolta sem er keimlíkur okkar og það verður ekkert vandamál fyrir hann að passa inn í hópinn okkar,"</i> segir Roberto De Zerbi, stjóri Brighton. <i>„Hann getur orðið mjög mikilvægur leikmaður fyrir félagið á komandi árum."</i> Verbruggen varð aðalmarkvörður Anderlecht í desember, spilaði sautján leiki fyrir félagið í belgisku úrvalsdeildinni og var valinn leikmaður tímabilsins hjá félaginu.

FRÉTTIR03.07.2023, 11:17

Hinn 75 ára gamli Hodgson áfram með Palace (Staðfest)

Crystal Palace hefur staðfest að hinn 75 ára gamli Roy Hodgson verður áfram stjóri liðsins á komandi tímabili. <i>„Ég er gríðarlega ánægður og stoltur með því að framlengja tíma minn hjá Crystal Palace. Ég vil þakka stjórnarformanninum og íþróttastjóranum fyrir þá trú sem þeir hafa á mér,"</i> segir Hodgson.

FRÉTTIR03.07.2023, 11:13

Tonali til Newcastle (Staðfest) - Dýrasti Ítali sögunnar

Sandro Tonali er formlega orðinn leikmaður Newcastle. Kaupverð er ekki gefið upp en talið er að það fari yfir 60 milljónir punda og það gerir miðjumanninn að dýrasta ítalska leikmanni í sögu fótboltans. Tonali er 23 ára, kemur frá AC Milan og skrifar undir samning við ítalska félagið til sumarsins 2028.

FRÉTTIR02.07.2023, 20:56

Sólveig riftir samningi sínum við Örebro (Staðfest)

Sólveig Jóhannesdóttir Larsen og sænska félagið Örebro hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi. Þetta staðfestir Richard Johansson, þjálfari Örebro, í samtali við Fótbolta.net.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.