Patrick Vieira nýr þjálfari Strasbourg (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Franska félagið RC Strasbourg er búið að staðfesta ráðningu Patrick Vieira í þjálfarastarfið hjá sér.
Vieira gerir þriggja ára samning við Strasbourg, sem var nýlega keypt af Todd Boehly sem er einnig eigandi Chelsea í ensku úrvalsdeildinni.
Vieira er 47 ára gamall og starfaði síðast við stjórnvölinn hjá Crystal Palace en var rekinn þaðan í mars. Þar áður stýrði Vieira OGC Nice í franska boltanum og New York City FC í Bandaríkjunum.
Hann er goðsögn í fótboltaheiminum eftir dvöl sína hjá Arsenal og frábæran árangur með franska landsliðinu.
Strasbourg forðaði sér frá falli úr frönsku deildinni á síðustu leiktíð með 40 stig úr 38 umferðum.
???? ???????????????????????????? ???????????????????????? ???????? ???????????? ???????????? ???????????????????? ???????? ????????????????! ????
— Racing Club de Strasbourg Alsace English (@RCSA_English) July 2, 2023
Patrick Vieira (47) has today signed a three-year contract as coach of Racing Club de Strasbourg Alsace. Trained at AS Cannes, the former French international midfielder (107 caps), was World Champion… pic.twitter.com/MURjsIjCCb



