Hinn 75 ára gamli Hodgson áfram með Palace (Staðfest)

Hodgson er fyrrum landsliðsþjálfari Englands.

Mynd: EPA

Crystal Palace hefur staðfest að hinn 75 ára gamli Roy Hodgson verður áfram stjóri liðsins á komandi tímabili.
„Ég er gríðarlega ánægður og stoltur með því að framlengja tíma minn hjá Crystal Palace. Ég vil þakka stjórnarformanninum og íþróttastjóranum fyrir þá trú sem þeir hafa á mér," segir Hodgson.

„Við erum með frábæran leikmannahóp hér. Þetta er frábær blanda af ungum og efnilegum leikmönnum með reynslumiklum leikmönnum sem hafa reynslu úr ensku úrvalsdeildinni og landsliðsbolta."
„Við setjum stefnuna á að enda í efri helmingnum á næsta tímabili og við teljum það raunhæft markmið með þennan leikmannahóp og frábæran stuðning frá mögnuðum stuðningsmönnum sem standa með liðinu."
Hodgson tók aftur við Palace í mars þegar hann tók við af Patrick Vieira og var þá ráðinn út tímabilið. Hann náði að hjálpa liðinu að forðast fall með því að taka 18 stig úr tíu leikjum. Liðið hafnaði í 11. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Þessi reynslumikli stjóri stýrði Palace áður í fjögur ár frá 2017 en ákvað að draga sig í hlé frá fótbolta sumarið 2021. Hann mætti aftur 2022 til að stýra Watford tímabundið en tókst ekki að koma í veg fyrir fall.

We’re pleased to announce that Roy Hodgson has been appointed Crystal Palace manager for the 23/24 season ??????
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) July 3, 2023
He will lead the side into next season alongside Paddy McCarthy as assistant manager, Ray Lewington as coach and Dean Kiely as goalkeeper coach.