Fotbolti.net
03.07.23 - 08:20
Ívan Guðjón Baldursson

Lens fær fjóra leikmenn - Metfé fyrir Diouf (Staðfest)

Diouf skoraði fyrir Basel í 1-2 sigri á útivelli gegn Fiorentina í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar. Basel tapaði rimmunni svo á heimavelli og komst Fiorentina í úrslitaleikinn.

Diouf skoraði fyrir Basel í 1-2 sigri á útivelli gegn Fiorentina í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar. Basel tapaði rimmunni svo á heimavelli og komst Fiorentina í úrslitaleikinn.

Canon

Mynd: EPA

Franska félagið Lens var spútnik lið síðasta tímabils og endaði í öðru sæti frönsku deildarinnar, aðeins einu stigi eftir Paris Saint-Germain.

Félagið er ekki enn búið að missa neina mikilvæga leikmenn úr sínum röðum en hefur tekist að krækja í fjóra nýja menn.

Einn þeirra er 20 ára gamall Andy Diouf, sem er lykilmaður í yngri landsliðum Frakka og átti frábært tímabil með Basel í svissneska boltanum.

Lens borgar 15 milljónir evra til að klófesta Diouf, sem er miðjumaður og kom að 10 mörkum í 57 leikjum með Basel á síðustu leiktíð. Hann var hjá Rennes í Frakklandi áður en hann gekk til liðs við Basel og á sex leiki að baki í frönsku deildinni.

Diouf er því dýrasti leikmaðurinn í sögu Lens, sem borgaði tæpar 12 milljónir fyrir Lois Openda og 9 milljónir fyrir Seko Fofana, sem er eftirsóttur af Al-Nassr.

Þá er Lens einnig búið að krækja í Stijn Spierings, 27 ára miðjumann, á frjálsri sölu frá Toulouse og kantmanninn markheppna Morgan Guilavogui frá B-deildarliði Paris FC.

Guilavogui er 25 ára og gerir fjögurra ára samning við Lens, en hann skoraði 18 mörk í 36 leikjum á síðustu leiktíð.

Að lokum krækti Lens í Neil El Aynaoui, 22 ára miðjumann Nancy.

Talið er að Lens borgi um 5 milljónir evra fyrir Guilavogui og tæpa milljón fyrir El Aynaoui.

Guilavogui í leik með Paris FC.

Guilavogui í leik með Paris FC.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.