Fotbolti.net
02.07.23 - 18:07
Ívan Guðjón Baldursson

Viðar Örn kominn til CSKA 1948 Sofia (Staðfest)

Viðar Örn kominn til CSKA 1948 Sofia (Staðfest)
Canon

Mynd: CSKA 1948 Sofia

Markahrókurinn Viðar Örn Kjartansson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við CSKA 1948 Sofia í Búlgaríu.

Viðar Örn kemur til félagsins úr röðum Atromitos þar sem hann fékk lítinn spiltíma eftir að hafa kvartað til FIFA vegna vangoldinna launa.

Viðar er 33 ára gamall og skoraði 6 mörk í 31 leik með Atromitos í grísku deildinni, en á lokahnykk tímabilsins fékk Viðar aðeins að koma inn af bekknum seint í leikjum.

Hann á 32 landsleiki að baki fyrir Ísland og hefur meðal annars unnið til verðlauna í Svíþjóð, Noregi, Ísrael og Kína á farsælum ferli.

Nú gengur Viðar til liðs við CSKA 1948 sem endaði í þriðja sæti búlgörsku deildarinnar í fyrra, með 64 stig úr 35 umferðum.

Liðið tekur þátt í undankeppni Sambandsdeildarinnar í haust.

Sjáðu kynningarmyndbandið

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.