Fotbolti.net
03.07.23 - 11:13
Elvar Geir Magnússon

Tonali til Newcastle (Staðfest) - Dýrasti Ítali sögunnar

Sandro Tonali.

Sandro Tonali.

Canon

Mynd: Getty Images

Sandro Tonali er formlega orðinn leikmaður Newcastle. Kaupverð er ekki gefið upp en talið er að það fari yfir 60 milljónir punda og það gerir miðjumanninn að dýrasta ítalska leikmanni í sögu fótboltans.

Tonali er 23 ára, kemur frá AC Milan og skrifar undir samning við ítalska félagið til sumarsins 2028.
Tonali er fyrstu stóru kaup Eddie Howe í sumar en liðið er að búa sig undir Meistaradeildarfótbolta.

Tonali hjálpaði AC Milan að vinna Ítalíumeistaratitilinn 2021. Hann kom upp úr unglingastarfi Brescia og var sautján ára gamall þegar hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir félagið.

Hann gekk í raðir AC Milan sumarið 2020 og þá hefur hann leikið fjórtán A-landsleiki fyrir Ítalíu.

„Hann er gríðarlega hæfileikaríkur og er með hugarfarið, líkamlega styrkinn og tæknilega getu til að styrkja okkur mikið. Hann hefur þegar mikla reynslu úr einni bestu deild Ítalíu og í Meistaradeildinni, auk þess að hafa spilað fyrir þjóð sína," segir Howe.

„Hann er einnig með tækifærið og möguleika á að vaxa og verða betri með okkur. Ég er spenntur fyrir því að fá hann inn í leikmannahóp okkar fyrir þetta spennandi tímabil sem framundan er."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.