Fotbolti.net
03.07.23 - 08:34
Ívan Guðjón Baldursson

Luton kaupir danskan miðvörð fyrir metfé (Staðfest)

Luton kaupir danskan miðvörð fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Luton Town er búið að krækja í danska miðvörðinn Mads Juel Andersen frá Barnsley.

Andersen er 25 ára gamall og hefur verið fastamaður í byrjunarliði Barnsley síðustu fjögur ár. Hann féll með liðinu úr Championship deildinni í fyrra og var næstum farinn aftur upp í sumar, en Barnsley tapaði gegn Sheffield Wednesday í úrslitaleik umspilsins um sæti í deildinni.

Andersen er uppalinn hjá Bröndby og lék fyrir Horsens áður en hann var fenginn til Barnsley. Hann lék 167 leiki á fjórum árum hjá Barnsley.

Hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Barnsley en kaupverðið sem Luton greiðir er óuppgefið. Félagið er talið borga rúmar 2 milljónir punda fyrir leikmanninn, sem væri metfé.

Andersen er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við Luton í sumar eftir að félagið krækti í Chiedozie Ogbene á frjálsri sölu frá Rotherham.

Auk þess að vera öflugur varnarmaður kemur Andersen inn með mikla leiðtogahæfileika, enda var hann fyrirliði Barnsley.

Luton kaupir danskan miðvörð fyrir metfé (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.