Romero kveður Lazio - Sportiello til Milan (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Argentínski kantmaðurinn Luka Romero er búinn að kveðja stuðningsmenn Lazio með færslu á Instagram.
Hann er að ganga í raðir AC Milan á frjálsri sölu, en hann er aðeins 18 ára gamall.
Romero kom við sögu í tólf leikjum með Lazio á síðustu leiktíð, og skoraði eitt mark í sex tilraunum í Serie A, þar sem hann kom yfirleitt inn af bekknum.
Romero er lykilmaður í U20 landsliði Argentínu og verður áhugavert að fylgjast með honum þroskast hjá Milan. Hann er hægri kantmaður að upplagi en getur einnig spilað í holunni fyrir aftan fremsta mann eða á vinstri kanti.
Milan er þá búið að staðfesta félagsskipti Marco Sportiello frá Atalanta.
Sportiello er 31 árs markvörður sem verður varaskeifa fyrir Mike Maignan.
Hann á 137 leiki að baki fyrir Atalanta en missti byrjunarliðssæti sitt 2016. Síðan þá hefur hann fengið nokkra leiki á tímabil, auk þess að vera lánaður út til Fiorentina og Frosinone.
"It’s a dream come true.” Sportiello’s first words as a Rossonero ?????
— AC Milan (@acmilan) June 28, 2023
"Un sogno che si avvera": l'intervista esclusiva ????#ACMQuest #SempreMilan pic.twitter.com/J1QW3OjOca



