Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25208 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR12.08.2022, 07:40

Kostic kominn til Juventus (Staðfest) - Pellegrini fer til Frankfurt

<p>Filip Kostic er orðinn nýr leikmaður Juventus og miklar líkur á að félaginu takist að skrá hann í tæka tíð fyrir fyrstu umferð tímabilsins í Serie A. Juve tekur á móti Sassuolo í lokaleik umferðarinnar á mánudagskvöldið.</p>

FRÉTTIR11.08.2022, 16:30

Torino fær Vlasic frá West Ham og Miranchuk frá Atalanta (Staðfest)

Króatíski sóknarmaðurinn Nikola Vlasic hefur verið lánaður frá West Ham til Torino á Ítalíu, með það fyrir augum að ítalska félagið kaupi hann eftir tímabilið. Sagt er að ákvæði sé um að Torino geti keypt hann fyrir 15 milljónir evra. Þessi 24 ára leikmaður kom til West Ham sumarið 2021 frá CSKA Moskvu og hefur leikið 31 leik fyrir Hamranna.

FRÉTTIR10.08.2022, 17:30

Watford fær Choudhury frá Leicester (Staðfest)

Watford hefur fengið Hamza Choudhury á láni frá Leicester út tímabilið. Watford féll úr úrvalsdeildinni í vor og eru að þétta raðirnar með því að fá Choudhury í sínar raðir. Hann er 24 ára miðjumaður sem kom eingungis komið við sögu í sex deildarleikjum á síðasta tímabili. Alls á hann að baki 53 leiki í úrvalsdeildinni, þá langflesta tímabilið 2019-20.

FRÉTTIR10.08.2022, 17:00

Tounkara til Man Utd (Staðfest)

Kvennalið Manchester United hefur tryggt sér franska varnarmanninn Aissatou Tounkara sem kemur frá Atletico Madrid. Tounkara er 27 ára og hefur leikið 35 landsleiki fyrir Frakkland, hún lék allan leikinn í 1-1 jafnteflinu gegn Íslandi á EM í Rotherham í sumar.

FRÉTTIR10.08.2022, 16:18

Malang Sarr kominn til Mónakó (Staðfest)

<p>Mónakó er búið að krækja í franska miðvörðinn Malang Sarr á eins árs lánssamning frá Chelsea.</p><br>Hann er fjórði leikmaðurinn sem Mónakó fær í sumar en áður hafði félagið krækt í Takumi Minamino, Breel Embolo og Thomas Didillon.

FRÉTTIR10.08.2022, 15:22

Damsgaard til Brentford (Staðfest)

Danski miðjumaðurinn Mikkel Damsgaard hefur staðist læknisskoðun hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford og samþykkt fimm ára samning. Þessi 22 ára leikmaður er keyptur frá Sampdoria á 12,7 milljónir punda og er sjötti leikmaðurinn sem Brentford fær til sín í sumar.

FRÉTTIR10.08.2022, 15:06

Arnór Ingvi til Norrköping (Staðfest) - „Nei blessaður"

Arnór Ingvi Traustason er genginn í raðir IFK Norrköping í annað sinn á ferlinum. Hann var leikmaður liðsins á árunum 2014-2016 og kemur nú til Svíþjóðar frá New England Revolution í Bandaríkjunum. Árið 2016 fór Arnór til Austurríkis og samdi við Rapid Vín, hann var þaðan lánaður til AEK í Aþenu árið 2017 og samdi svo við Malmö árið 2018.

FRÉTTIR10.08.2022, 10:20

Gummi Tóta til OFI Crete (Staðfest)

Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við OFI Crete á Krít í Grikklandi. Guðmundur, sem er þrítugur, var síðast á mála hjá Álaborg í Danmörku en yfirgaf liðið í sumar þegar hann fékk ekki framlengingu á samningi sínum. OFI Crete hafnaði í 8. sæti grísku deildarinnar á síðustu leiktíð. Guðmundur er þrítugur Selfyssingur sem hefur á atvinnumannaferlinum leikið í Noregi, Danmörku, Svíþjóð Bandaríkjunum og nú Grikklandi. Hann á tólf landsleiki að baki fyrir Ísland.

FRÉTTIR09.08.2022, 22:47

Alexis Sanchez til Marseille (Staðfest)

<p>Olympique de Marseille er búið að staðfesta komu Alexis Sanchez til félagsins á frjálsri sölu eftir að hann samdi um starfslok hjá Inter.</p>

FRÉTTIR09.08.2022, 16:18

Werner til RB Leipzig (Staðfest)

Þýski sóknarmaðurinn Timo Werner hefur sent stuðningsmönnum Chelsea opið bréf þar sem hann þakkar þeim fyrir samveruna gegnum árin tvö og kveður félagið. Werner er kominn aftur til RB Leipzig, 24 mánuðum eftir að hann kvaddi og var keyptur til Chelsea fyrir 45 milljónir punda. Leipzig kaupir hann nú aftur fyrir um 25 milljónir punda.

FRÉTTIR09.08.2022, 12:12

Onana til Everton (Staðfest)

Amadaou Onana hefur skrifað undir samning hjá Everton og kemur til félagsins frá franska félaginu LOSC Lille. Kaupverðið er óuppgefið en fjallað hefur verið um að Everton hafi boðið um 33 milljónir punda í leikmanninn.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.