Fotbolti.net
10.08.22 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Tounkara til Man Utd (Staðfest)

Aissatou Tounkara.

Aissatou Tounkara.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Kvennalið Manchester United hefur tryggt sér franska varnarmanninn Aissatou Tounkara sem kemur frá Atletico Madrid.

Tounkara er 27 ára og hefur leikið 35 landsleiki fyrir Frakkland, hún lék allan leikinn í 1-1 jafnteflinu gegn Íslandi á EM í Rotherham í sumar.
„Ég er mjög ánægð og stolt af því að ganga í raðir félags á borð við Manchester United," segir Tounkara.

„Hún kemur með mikilvæga Meistaradeildarreynslu til okkar og mun hjálpa yngri leikmönnum. Þá styrkir hún varnarleik okkar heilt yfir," segir Marc Skinner, stjóri United.

Manchester United hafnaði í fjórða sæti í ensku kvennadeildinni á síðasta tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.