Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 10. ágúst 2022 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Watford fær Choudhury frá Leicester (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Watford hefur fengið Hamza Choudhury á láni frá Leicester út tímabilið. Watford féll úr úrvalsdeildinni í vor og eru að þétta raðirnar með því að fá Choudhury í sínar raðir.

Hann er 24 ára miðjumaður sem kom eingungis komið við sögu í sex deildarleikjum á síðasta tímabili. Alls á hann að baki 53 leiki í úrvalsdeildinni, þá langflesta tímabilið 2019-20.

Alls hefur hann spilað 84 leiki fyrir Leicester og skorað í þeim tvö mörk. Choudhury er enskur og lék á sínum tíma sjö U21 landsleiki.

Watford er með fjögur stig eftir tvo leiki í Championship deildinni. Choudhury var ekki í leikmannahópi Leicester þegar liðið mætti Brentford á sunnudag í fyrsta leik sínum á nýju tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner