Fotbolti.net
11.08.22 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Burnley fær Nathan Tella frá Southampton (Staðfest)

Burnley fær Nathan Tella frá Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Burnley er búið að staðfesta komu Nathan Tella á lánssamningi frá Southampton.

Tella er 23 ára gamall kantmaður sem ólst upp hjá Arsenal en hefur verið hjá Southampton undanfarin fimm ár. Hann á 33 leiki að baki fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni.

Hann mun meðal annars berjast við Jóhann Berg Guðmundsson um byrjunarliðssæti hjá Burnley en Jóhann hefur misst af fyrstu tveimur deildarleikjum tímabilsins vegna meiðsla.

Tella getur spilað með Burnley strax annað kvöld þegar liðið heimsækir Watford í Championship deildinni. Burnley er komið með fjögur stig eftir tvær umferðir.

Kantmaðurinn á þrjú ár eftir af samningi sínum við Southampton. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.