Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 11. ágúst 2022 16:30
Elvar Geir Magnússon
Torino fær Vlasic frá West Ham og Miranchuk frá Atalanta (Staðfest)
Mynd: EPA
Króatíski sóknarmaðurinn Nikola Vlasic hefur verið lánaður frá West Ham til Torino á Ítalíu, með það fyrir augum að ítalska félagið kaupi hann eftir tímabilið.

Sagt er að ákvæði sé um að Torino geti keypt hann fyrir 15 milljónir evra.

Þessi 24 ára leikmaður kom til West Ham sumarið 2021 frá CSKA Moskvu og hefur leikið 31 leik fyrir Hamranna.

Torino hafnaði í tíunda sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.

Félagið hefur einnig fengið Aleksey Miranchuk frá Atalanta á svipuðum samningi, lán í eitt ár og svo möguleg kaup.

Miranchuk er 26 ára Rússi sem var keyptur til Atalanta fyrir um 15 milljónir evra en hefur ekki tekist að festa sig í sessi í byrjunarliðinu eftir tvö ár hjá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner