Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25216 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR10.08.2022, 10:20

Gummi Tóta til OFI Crete (Staðfest)

Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við OFI Crete á Krít í Grikklandi. Guðmundur, sem er þrítugur, var síðast á mála hjá Álaborg í Danmörku en yfirgaf liðið í sumar þegar hann fékk ekki framlengingu á samningi sínum. OFI Crete hafnaði í 8. sæti grísku deildarinnar á síðustu leiktíð. Guðmundur er þrítugur Selfyssingur sem hefur á atvinnumannaferlinum leikið í Noregi, Danmörku, Svíþjóð Bandaríkjunum og nú Grikklandi. Hann á tólf landsleiki að baki fyrir Ísland.

FRÉTTIR09.08.2022, 22:47

Alexis Sanchez til Marseille (Staðfest)

<p>Olympique de Marseille er búið að staðfesta komu Alexis Sanchez til félagsins á frjálsri sölu eftir að hann samdi um starfslok hjá Inter.</p>

FRÉTTIR09.08.2022, 16:18

Werner til RB Leipzig (Staðfest)

Þýski sóknarmaðurinn Timo Werner hefur sent stuðningsmönnum Chelsea opið bréf þar sem hann þakkar þeim fyrir samveruna gegnum árin tvö og kveður félagið. Werner er kominn aftur til RB Leipzig, 24 mánuðum eftir að hann kvaddi og var keyptur til Chelsea fyrir 45 milljónir punda. Leipzig kaupir hann nú aftur fyrir um 25 milljónir punda.

FRÉTTIR09.08.2022, 12:12

Onana til Everton (Staðfest)

Amadaou Onana hefur skrifað undir samning hjá Everton og kemur til félagsins frá franska félaginu LOSC Lille. Kaupverðið er óuppgefið en fjallað hefur verið um að Everton hafi boðið um 33 milljónir punda í leikmanninn.

FRÉTTIR09.08.2022, 11:00

Mat Ryan orðinn liðsfélagi Hákonar og Ísaks (Staðfest)

Mat Ryan, fyrrum markvörður Arsenal og Brighton, er genginn í raðir FC Kaupmannahafnar og skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Ryan er þrítugur markvörður sem er sóttur vegna meiðsla Kamil Grabara sem hefur verið aðalmarkvörður FCK.

FRÉTTIR09.08.2022, 09:52

Sesko til RB Leipzig (Staðfest) - Lánaður til baka

Í dag tilkynnti þýska félagið RB Leipzig um kaup á slóvenska framherjanum Benjamin Sesko. Sesko kemur frá systurfélagi RB Leipzig, RB Salzburg. Sesko er nítján ára gamall og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2028. Hann er lánaður til baka til Salzburg og mun spila þar á komandi leiktíð.

FRÉTTIR09.08.2022, 09:30

Robles til Leeds (Staðfest)

Markvörðurinn Joel Robles er kominn aftur í enska boltann en hann er genginn í raðir Leeds United á frjálsri sölu frá Real Betis. Robles er 32 ára og var hjá Everton og Wigan. Robles skrifaði undir eins árs samning á Elland Road en honum er ætlað að vera varamarkvörður og veita aðalmarkverðinum Illan Meslier samkeppni. Robles stóð í marki Wigan þegar liðið vann Manchester City í úrslitaleik FA-bikarsins 2013. Hann fylgdi svo Roberto Martínez til Everton þar sem hann lék 65 leiki áður en hann gekk í raðir Betis á frjálsri sölu 2018. Leeds fer vel af stað í ensku úrvalsdeildinni, liðið vann Wolves 2-1 í fyrstu umferðinni um síðustu helgi.

FRÉTTIR09.08.2022, 08:30

Mertens til Galatasaray (Staðfest)

Dries Mertens er mættur til tyrkneska félagsins Galatasaray á frjálsri sölu en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið.

FRÉTTIR08.08.2022, 20:09

Conor Coady til Everton (Staðfest)

Enski landsliðsmaðurinn Conor Coady er genginn til liðs við Everton á láni frá Wolves. Þetta kemur fram í tilkynningu Everton í kvöld.

FRÉTTIR08.08.2022, 18:38

Arsenal selur Torreira til Galatasaray (Staðfest)

Úrúgvæski miðjumaðurinn Lucas Torreira hefur gengið frá vistaskiptum sínum frá Arsenal til Galatasaray í Tyrklandi en þetta staðfestir enska félagið á heimasíðu sinni í dag.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.