Fotbolti.net
09.08.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Modeste gerði eins árs samning við Dortmund (Staðfest)

Modeste gerði eins árs samning við Dortmund (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Borussia Dortmund

Franski framherjinn Anthony Modeste skrifaði í gær undir eins árs samning við Borussia Dortmund en hann kemur til félagsins frá Köln.
Modeste er 34 ára gamall og gerði 20 mörk fyrir Köln í þýsku deildinni á síðustu leiktíð.

Borussia Dortmund fékk framherjann til félagsins sem neyðarúrræði þar sem Sebastien Haller mun ekki spila með liðinu á næstunni eftir að hann greindist með æxli í eistum.

Haller kom til Dortmund frá Ajax í sumar og átti að leysa Erling Braut Haaland af hólmi en staðan breyttist eftir að hann greindist með æxlið. Haller lét fjarlægja æxlið og verður hann í geislameðferð næstu mánuði.

Modeste er því kominn í hans stað en Dortmund greiðir Köln 5 milljónir evra fyrir kappann. Frakkinn gerði eins árs samning og staðfesti Dortmund kaupin í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.