Fotbolti.net
09.08.22 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Leeds lánar Helder Costa til Sádi-Arabíu (Staðfest)

Helder Costa mun spila í Sádi-Arabíu

Helder Costa mun spila í Sádi-Arabíu

Canon

Mynd: Getty Images

Angólamaðurinn Helder Costa er genginn til liðs við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu á láni frá Leeds United.
Leeds fékk Costa á láni frá Wolves tímabilið 2019-20. Hann var í hópnum sem tryggði sig upp í ensku úrvalsdeildina og var hann síðan keyptur til Leeds.

Hann spilaði 15 leiki í ensku úrvalsdeildinni með Leeds en var lánaður til Valencia fyrir síðustu leiktíð.

Costa, sem er 28 ára, snéri aftur til Leeds í sumar en hann hefur nú verið lánaður öðru sinni frá félaginu, nú til Al-Ittihad í Sádi-Arabíu.

Þar mun hann spila í ár en félagið á möguleika á að kaupa hann á lánstímanum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.