Fotbolti.net
01.01.07 - 17:42
Hafliði Breiðfjörð

Akinbiyi gengur í raðir Burnley á ný (Staðfest)

Ade Akinbiyi í leik gegn Reading.

Ade Akinbiyi í leik gegn Reading.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Ade Akinbiyi er genginn í raðir Burnley á ný frá enska úrvalsdeildarfélaginu Sheffield United en kaupverðið er 750 þúsund pund. Akenbiyi sem er orðinn 32 ára gamall fór frá Burnley fyrir aðeins ári síðan en gerir nú tveggja og hálfs árs samning við félagið.
Steve Cotterill knattspyrnustjóri Burnley var hæstánægður með að fá hann aftur til félagsins. ,,Ég er alveg hæstánægður að fá Ade aftur því ég er viss um að stuðningsmennirnir og liðsfélagar hans verða það," sagði Cotterill.

,,Við hlökkum til að bjóða hann velkominn aftur en þurfum að gefa honum möguleika á að aðlagast aftur hjá félaginu sem elskar hann."

Akinbiyi gekk í raðir Sheffield United í janúar í fyrra en þá var kaupverðið met hjá félaginu, 1,75 milljónir punda. Hann hefur aðeins leikið fimm leiki í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni.

Sheffield United fá nú 650 þúsund pund strax og svo 100 þúsund til viðbótar sem verða greidd í sumar. Burnley eru um miðja Championship deildina sem er næst efsta deild á Englandi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.