Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 01. janúar 2023 18:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yates: Ekki sáttir með jafntefli á heimavelli
Mynd: EPA

Nottingham Forest náði í gott stig gegn Chelsea í kvöld eftir að liðið var marki undir eftir slakan fyrri hálfleik af þeirra hálfu.


Ryan Yates leikmaður liðsins ræddi við Sky Sports eftir leikinn.

„Við byrjuðum ekki vel. Þetta er skref í rétta átt. Markið þeirra var óheppni af okkar hálfu en við sýndum seiglu og komum til baka. Stjórinn sagði okkur að hafa meiri trú á okkur sjálfum. VIð sýndum þeim of mikla virðingu,"  sagði Yates.

„Við erum á City Ground, við þurfum að fá stuðningsmenn til að standa upp úr sætunuum, þetta er eitthvað til að byggja ofan á. Við erum ekki sáttir með jafnteli á á heimavelli en þetta er góð byrjun."


Athugasemdir
banner