12.11.26 - 17:41
Brynjar Ingi Erluson
„Við erum búnir að vera klaufar“

Brynjólfur er markahæstur í hollensku deildinni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Willum, bróðir Brynjólfs, sneri aftur til Hollands og samdi við NEC

Brynjólfur Andersen Willumsson er að eiga frábært tímabil persónulega með hollenska félaginu Groningen, en liðinu hefur ekki tekist að fylgja eftir góðri byrjun á tímabilinu undanfarnar vikur.
Brynjólfur er markahæstur í hollensku deildinni ásamt Wout Weghorst, framherja Twente, og Sven Mijnans hjá PSV, en allir hafa þeir skorað níu mörk. Gengið hefur hins vegar ekki verið jafn gott hjá Groningen sem hefur ítrekað kastað frá sér góðri stöðu í leikjum.
Brynjólfur segist ekki fylgjast of mikið með baráttunni um markakóngstitilinn og reynir frekar að einbeita sér að því sem hann getur sjálfur haft áhrif á.
„Neinei, maður svona kíkir aðeins á þetta núna fyrst þegar maður er kominn efstur. Þá fer maður að sjá aðeins eins og sér að hinir sem eru í stærri liðunum eru að skora þrjú, fjögur í leik þannig að þeir ná manni helvíti hratt og maður getur ekkert verið að pæla í því. Ég hugsa bara um sjálfan mig og það er mikilvægt að skora mörk fyrir sjálfstraustið og vera að spila leiki,“ sagði Brynjólfur við Fótbolta.net.
Groningen hefur kastað frá sér tveggja marka forystu í tveimur leikjum og er án sigurs í síðustu fimm leikjum í deild og bikar. Brynjólfur hefur þó haldið áfram að skora, en segir liðið hafa verið alltof klaufalegt undanfarið.
„Við byrjuðum mjög fínt sko en það er búið að vera svolítið þung vika núna og síðasta vika, þar sem við erum ekki búin að vinna held ég síðustu fjóra leiki ef mig minnir rétt og búið að vera svolítið klaufalegt. Við erum tvisvar búnir að vera með tveggja marka forystu og tapað niður sem er bara mjög dýrt fyrir okkur. Við erum búnir að vera klaufar,“ sagði Brynjólfur um gengið.
Hann ræddi einnig endurkomu bróður síns til Hollands, en Willum Þór gekk til liðs við NEC Nijmegen. Brynjólfur segir það kærkomið að hafa bróður sinn aftur í sama landi og geta hitt hann þegar tækifæri gefst.
„Já, það er mjög þægilegt og þá getur maður alltaf kíkt yfir ef maður hefur einn eða tvo daga í frí eða eitthvað svoleiðis sem er bara mjög þægilegt,“ sagði hann í lokin.