12.11.26 - 18:25
Brynjar Ingi Erluson
Havertz um Wirtz: Lifum í heimi þar sem margir horfa ekki einu sinni á leikina

Florian Wirtz og Kai Havertz

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Florian Wirtz og Kai Havertz

Mynd: EPA
Kai Havertz, leikmaður Englandsmeistara Arsenal, hefur komið samherja sínum í þýska landsliðinu til varnar.

TENGT EFNI
De Jong skýtur á áhugafólk um fótbolta - „Skilur ekki hvað er að gerast á vellinum“
Havertz var spurður út í gengi Florian Wirtz hjá Liverpool, en hann er ósammála þeirri gagnrýni sem Wirtz hefur fengið í enskum fjölmiðlum.
„Ég þekki það vel hvernig enskir fjölmiðlar geta verið. Mér finnst hann vera að spila mjög góðan fótbolta á þessu tímabili.“
„Hann tekur virkan þátt í leikjunum, skapar færi fyrir liðsfélaga sína og er sjálfur mjög ógnandi. Ég hef séð hann spila ótrúlega vel síðasta eina og hálfa árið og fyrir mér er hann einn besti leikmaður sem ég hef spilað með,“ sagði Havertz.
Havertz gagnrýndi einnig hvernig margir fylgjast með fótbolta í dag og sagði fólk í auknum mæli dæma leikmenn út frá tölfræði í öppum á borð við FlashScore og FotMob í stað þess að horfa á leikina sjálfa.
Hann er þar á svipaðri línu og Frenkie de Jong hjá Barcelona, sem gagnrýndi sömu þróun á dögunum.
„Við lifum í heimi þar sem margir horfa ekki einu sinni á leikina. Þeir fara bara inn í öppin, sjá að leikmaður hefur hvorki skorað né lagt upp mark og ákveða út frá því að hann hafi spilað illa.“
Havertz er þó sannfærður um að Wirtz muni sýna sitt rétta andlit hjá Liverpool.
„Hann mun finna taktinn og verða gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir Liverpool,“ sagði Havertz.
Gagnrýnin var mest í upphafi tímabilsins, en Wirtz hefur verið frábær í síðustu leikjum og hefur hún því minnkað töluvert. Samfélagsmiðlar geta þó enn verið algjör dýragarður þegar kemur að umræðunni um hann.