Fotbolti.net
01.02.06 - 15:04
Magnús Már Einarsson

Vela til Celta Vigo (Staðfest) (UPPFÆRT)

Vela til Celta Vigo (Staðfest) (UPPFÆRT)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Celta Vigo náði að fá mexíkóska framherjann Carlos Vela frá Guadalajara áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær. Talið var að Arsenal hefði verið búið að tryggja sér forkaupsréttinn á þessum efnilega 16 ára leikmanni en hann hefur nú gert fimm ára samning við Celta Vigo sem mun eflaust leyfa honum að fara til enska liðsins í framtíðinni þar sem þau eru í samstarfi með unga leikmenn.
Vela er bráðefnilegur leikmaður en hann var markahæstur með fimm mörk þegar að Mexíkó sigraði HM U-17 ára landsliða í Perú í fyrra og vakti hann mikla athygli þar.

Celta Vigo sem tapaði 2-1 fyrir Real Madrid um síðustu helgi er í áttunda sæti í La Liga.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.