Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Juventus að landa Boga „Here we go!"
Mynd: EPA
Franski vængmaðurinn Jeremie Boga er á leið til Juventus á láni frá Nice út þetta tímabil. Það er Fabrizio Romano sem segir frá tíðindunum á X.

Boga er 29 ára gamall og í miklum metum á Ítalíu en hann lék frábærlega með Sassuolo og Atalanta áður en hann fór aftur heim til Frakklands árið 2023.

Heimkoma hans breyttist í martröð í nóvember eftir slakt gengi Nice, en þá réðust stuðningsmenn félagsins á leikmenn er þeir stigu út úr liðsrútunni eftir 3-1 tap gegn Lorient.

Hann var sendur í fimm daga veikindaleyfi eftir atvikið en hann vill fara aftur til Ítalíu.

Nice hefur samþykkt tilboð Juventus í Boga. Félagið mun fá hann á láni með möguleika á að gera skiptin varanleg í sumar. Samkvæmt Romano er hann á leið í læknisskoðun og mun svo í kjölfarið skrifa undir samninginn.

Boga, sem er fæddur og uppalinn í Frakklandi, á rætur sínar að rekja til Fílabeinsstrandarinnar og tók ákvörðun um að spila þjóðina eftir að hafa áður spilað með yngri landsliðum Frakklands.

Hann á 24 A-landsleiki og gert eitt mark fyrir Fílabeinsströndina, en ekki verið kallaður í hópinn síðan síðasta sumar.



Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner