Liverpool og Chelsea berjast um varnarmann - Carrick vill halda Rashford
   sun 01. febrúar 2026 10:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Liverpool í viðræðum um fyrrum lærisvein Slot
Mynd: Sunderland
Liverpool er í viðræðum um kaup á varnarmanninum Lutsharel Geertruida. Fabrizio Romano og Sky Sports greina frá þessu.

Viðræðurnar eru á frumstigi en það gæti verið flókið fyrir Liverpool að næla í hann fyrir gluggalok. Hægri bakvörðurinn er á láni hjá Sunderland frá RB Leipzig svo Sunderland þarf að gefa grænt ljós svo hann geti farið til Liverpool.

Þessi 25 ára gamli leikmaður er einn af nokkrum möguleikum sem Liverpool er að skoða fyrir gluggalokin.

Sunderland vill ekki standa í vegi fyrir honum þar sem þetta er stórt tækifæri fyrir hann en félagið vill finna arftaka í staðin.

Liverpool er í miklum meiðslavandræðum en hægri bakverðirnir Conor Bradley og Jeremie Frimpong eru báðir fjarverandi. Geertruida er uppalinn hjá Feyenoord og spilaði undir stjórn Arne Slot frá 2021-2024.
Athugasemdir