01.03.08 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Brynjar Orri Bjarnason til Víkings á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Víkingur Reykjavík sem leikur í 1 deildinni nú í sumar hefur fengið Brynjar Orra Bjarnason að láni frá KR.
Brynjar er tvítugur sóknarmaður og á hann sex leiki að baki með yngri landsliðum Íslands.
Brynjar er bróðir Theodórs Elmar sem leikur með Lyn í Noregi.
Hann æfði með Víkingi í vikunni sem er að líða og heillaðist Jesper Tollefsen þjálfari Víkinga af Brynjari.
Víkingur féll úr Landsbankadeildinni í sumar en Jesper Tollefsen tók við liðinu nú í vetur eftir að Magnús Gylfason hætti með liðið.

Heimild: Víkingur.net