Fotbolti.net
01.03.26 - 22:06
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Sevilla kom til baka í borgarslag - Antony skoraði hjólhestaspyrnumark

Antony skoraði geggjað mark

Antony skoraði geggjað mark

Canon

Mynd: EPA

Erkifjendur og nágrannar Real Betis og Sevilla sættust á að deila stigunum er liðin gerðu 2-2 jafntefli í Seville-borg í La Liga í kvöld.
Sevilla er að eiga slakt tímabil á meðan Real Betis er í harðri baráttu um Evrópusæti.

Brasilíumaðurinn Antony sýndi sparihliðarnar strax í byrjun leiks með stórkostlegri hjólhestaspyrnu. Stórbrotið mark hjá Brassanum sem er að elska lífið hjá Betis.

Alvaro Fidalgo kom Betis í tveggja marka forystu um það bil tuttugu mínútum síðar og var útlit fyrir að Betis myndi vinna grannaslaginn nokkuð örugglega.

Sevilla stillti hins vegar saman strengi í hálfleik og náði að bjarga stigi. Alexis Sanchez minnkaði muninn á 62. mínútu áður en Isaac Romero Bernal jafnaði metin fimm mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma.

NIðurstaðan 2-2 jafntefli en Betis er í 5. sæti með 43 stig á meðan Sevilla er í 11. sæti með 30 stig.

Celta Vigo vann 2-1 endurkomusigur á Girona. Celta var einu marki undir í hálfleik, en Ferran Jutgla og sjálfsmark brasilíska varnarmannsins Vitor Reis skilaði Celta sigrinum.

Largie Ramadan var hetja Valencia í 1-0 sigrinum á Osasuna, en markið gerði hann úr vítaspyrnu á 67. mínútu og þá gerðu Elche og Espanyol 2-2 jafntefli þar sem Rafa Mir jafnaði metin úr vítaspyrnu undir lok leiks.

Girona 1 - 2 Celta
1-0 Vladyslav Vanat ('35 )
1-1 Ferran Jutgla ('58 )
1-2 Vitor Reis ('70 , sjálfsmark)

Betis 2 - 2 Sevilla
1-0 Antony ('16 )
2-0 Alvaro Fidalgo ('37 )
2-1 Alexis Sanchez ('62 )
2-2 Isaac Romero Bernal ('85 )

Valencia 1 - 0 Osasuna
1-0 Largie Ramazani ('67 , víti)

Elche 2 - 2 Espanyol
0-1 Kike Garcia ('7 )
1-1 Marc Aguado ('42 )
1-2 Carlos Romero ('57 )
2-2 Rafa Mir ('90 , víti)
Rautt spjald: Charles Pickel, Espanyol ('90)

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona8+2724
2Atletico Madrid8+1019
3Betis8+519
4Real Madrid8+1118
5Sevilla8+114
6Real Sociedad8-313
7Alaves8+411
8Deportivo9+111
9Celta8+28
10Athletic6+18
11Villarreal808
12Espanyol808
13Vallecano7-58
14Getafe8-68
15Racing Santander8-108
16Osasuna8-108
17Levante8-47
18Elche8-66
19Valencia8-95
20Malaga8-94
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.