Fotbolti.net
01.04.24 - 09:33
Elvar Geir Magnússon

Ofurtölvan segir Liverpool líklegast til að vinna titilinn

Mun Klopp kveðja með Englandsmeistaratitli?

Mun Klopp kveðja með Englandsmeistaratitli?

Canon

Mynd: EPA

Ofurtölvur Opta og Nielsen's Gracenote gefa báðar Liverpool 48% líkur á því að vinna ensku úrvalsdeildina þetta tímabilið. Það var góður dagur fyrir Liverpool í gær þegar liðið vann Brighton áður en keppinautar liðsins um Englandsmeistaratitilinn; Manchester City og Arsenal, gerðu markalaust jafntefli innbyrðis.

Ofurtölva Opta reiknar út líkleg úrslit 10 þúsund sinnum en þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem hún er með annað lið en Manchester City á toppnum í spá sinni.

„Það er alltaf það lið sem er efst sem er líklegast í mínum huga," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, eftir jafnteflið gegn Arsenal í gær.

Liverpool er með tveggja stiga forystu í deildinni.
Lið - % möguleiki á að vinna titilinn
1. Liverpool 48%
2. Man City 34%
3. Arsenal 18%

LEIKIRNIR sem liðin eiga eftir:

Liverpool: Sheffield United (H), Manchester United (Ú), Crystal Palace (H), Fulham (Ú), Everton (Ú), West Ham (Ú), Tottenham (H), Aston Villa (Ú), Wolves (H).

Manchester City: Aston Villa (H), Crystal Palace (Ú), Luton (H), Brighton (Ú), Nottingham Forest (Ú), Wolves (H), Fulham (Ú), West Ham (H) - Tottenham (Ú).

Arsenal: Luton (H), Brighton (Ú), Aston Villa (H), Wolves (Ú), Chelsea (H), Tottenham (Ú), Bournemouth (H), Manchester United (Ú), Everton (H).
Ofurtölvan segir Liverpool líklegast til að vinna titilinn
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.