Danir misstu af sæti á HM í gær eftir að hafa tapað gegn Tékkum í vítaspyrnukeppn í úrslitaleik umspilsins. Gamli Valsarinn Kasper Högh leyfði Dönum að dreyma þegar hann jafnaði í 2-2 í framlengingunni en þrjú víti fóru forgörðum í vítaspyrnukeppninni og Danir sátu eftir með sárt ennið.
Tapið er sérstaklega súrt því Danir voru í dauðafæri á að komast beint á HM í nóvember en gerðu óvænt jafntefli gegn Belarús á heimavelli og töpuðu svo gegn Skotum á útivelli í úrslitaleik um toppsæti undanriðilsins þegar jafntefli hefði dugað.
Eftirfarandi fyrirsagnir má sjá á danska miðlinum BT.dk.

„Að missa af HM er skandall"
„Þetta mun sitja í okkur í mörg, mörg ár"
„Þetta er skandall"
„Ófyrirgefanlegt í Prag - við munum aldrei gleyma þessu!"
„Algjör hörmung - sumarið er eyðilagt"
„Hver fjandinn gerðist?"
Danir hafa sex sinnum farið á HM, síðast 2022. Síðast komst liðið ekki á HM 2014.