Liverpool vill Conceicao - City að vinna kapphlaupið um Anderson - Ýmsir orðaðir við Man Utd
   mið 01. apríl 2026 14:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Segja að Guðjón Pétur hafi verið lánaður í KÁ
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Haukar tilkynntu í dag, 1. apríl, að Guðjón Pétur Lýðsson hefði verið lánaður í KÁ, venslalið Hauka, fyrir komandi tímabil.

Guðjón Pétur er reynslumikill ieikmaður sem var ráðinn sem þjálfari Hauka, sem eru í 2. deild, síðasta haust.

Hann er 38 ára miðjumaður sem spilað hefur með Haukum, Breiðabliki, Stjörnunni, Álftanesi, Val, Helsingborg, ÍBV og Grindavík á sínum ferli.

KÁ vann 4. deildina síðasta sumar og verður í 3. deildinni á komandi tímabili.

Úr tilkynningu Hauka
Í einstöku samkomulagi milli félaganna mun Guðjón Pétur gegna hlutverki spilandi leikmanns hjá KÁ, á meðan hann heldur áfram sínu starfi sem þjálfari hjá Hauka.

Um er að ræða nýstárlega lausn þar sem reynsla og gæði Guðjóns munu nýtast á báðum vígstöðvum í sumar.

Samstarf félaganna hefur verið til fyrirmyndar og eru bæði lið afar spennt fyrir þessu fyrirkomulagi.

Guðjón Pétur mun því sjást bæði á hliðarlínunni og inni á vellinum í sumar, eftir því sem dagskráin leyfir.

Slapp
banner