01.05.06 - 13:10
Magnús Már Einarsson
Sigurður Donys í Huginn (Staðfest)

Mynd: SD

Mynd: SD
Sigurður Donys Sigurðsson mun leika með Huginn frá Seyðisfirði í annarri deildinni í sumar. Sigurður Donys sem er tvítugur fór til Keflvíkinga síðastliðið haust en hætti hjá liðinu þar sem hann þurfti að fara í uppskurð vegna hnémeiðsla.
Hann hefur náð fínum bata eftir meiðslin og mun líklega vera til í slaginn fyrir aðra umferðina í annarri deild sem er 21.maí en hann ku hafa farið í aðra deildina til að fá sem mesta leikæfingu í sumar til að byggja sig upp fyrir næsta tímabil.
Sigurður ólst upp hjá Einherja á Vopnafirði en fór í Þór árið 2003 þar sem hann lék átta leiki og skoraði eitt mark í fyrstu deildinni í fyrra. Sigurður sem á tvo U-19 ára landsleiki að baki byrjaði að vekja athygli haustið 2002 er nokkur lið á Englandi sýndu honum áhuga. Það voru meðal annars Manchester United, Newcastle, Middlesbrough, West Ham, FC Kaupmannahöfn og Stoke City en fjögur síðarnefndu félögin fengu hann til reynsluæfinga hjá sér.