01.05.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Brynjar Víðisson og Senid Kulas í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Brynjar í leik með HK.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Brynjar í leik með HK.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Víkingur Ólafsvík hefur fengið tvo nýja leikmenn til liðs við sig. Brynjar Víðisson er kominn til liðsins frá HK á láni og Senid Kulas frá Bosníu.
Brynjar er 23 ára miðjumaður en hann hefur leikið allan sinn feril með HK fyrir utan hluta sumarsins í fyrra þegar hann lék með Ými, B-liði félagsins.
Undir lok síðasta sumars lék hann síðan með HK og kom við sögu í þremur leikjum í Landsbankadeildinni.
Kulas er 26 ára varnar og miðjumaður sem kom til landsins síðastliðinn fimmtudag en hann hefur hafið æfingar með Víkingi.
Þá fengu Víkingar framherjann Gísla Frey Brynjarsson á láni frá ÍA í fyrradag eins og við höfum greint frá.