Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
banner
   fös 01. maí 2026 20:22
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carrick himinlifandi - „Mainoo á þetta skilið"
Mynd: Man Utd
Kobbie Mainoo skrifaði undir nýjan fimm ára samning við Man Utd í gær.

Mainoo var ekki inn í myndinni hjá Ruben Amorim en hefur spilað gríðarlega vel undir stjórn Michael Carrick.

„Ég hef verið gríðarlega hrifinn af Kobbie síðan ég kom hingað. Hann er dæmigerður fyrir þetta félag, ungir leikmenn sem eru að koma í gegnum akademíuna, sem lifa fyrir félagið og koma upp með raunverulega hæfileika," sagði Carrick.

„Hann hefur sýnt hvað hann er að gera. Mér finnst hann, í síðustu tveimur leikjum sérstaklega, hafa hann verið frábær. Eðlilega þróunin er að skrifa undir nýjan samning og allir eru himinlifandi með það, þar á meðal ég, því ég tel að hann eigi það skilið.“
Slapp
banner
banner