01.06.06 - 06:28
Magnús Már Einarsson
Cameron Jerome til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham City hefur fengið framherjann Cameron Jerome frá Cardiff á þrjár milljónir punda en kaupverðið fyrir þennan nítján ára gamla leikmann getur hækkað upp í fjórar milljónir punda.
Jerome sem er U-21 árs landsliðsmaður skoraði átján mörk á síðustu leiktíð í ensku fyrstu deildinni og vakti athygli Sheffield United, West Bromwich Albion og Norwich en hann skrifaði undir fjöggurra ára samning við Birmingham í gær eftir að hafa staðist læknisskoðun hjá liðinu.
,,Ég er ánægður með að vera að koma í stórt félag eins og þetta. Vonandi get ég haldið áfram þar sem frá var horfið á síðustu leiktíð (með Cardiff) og haldið áfram að gera það sama hér," sagði Jerome við heimasíðu Birmingham.
,,Steve Bruce er mjög góður stjóri. Allir vita það og ég virði hann mikið. Ég hef gert það síðan ég var barn og hélt með Manchester United. Ég talaði við hann og uppgvötaði að þetta yrði annað skref upp á við fyrir mig á svona ungum aldri. Birmingham er gott félag og þetta er stórt tækifæri fyrir mig. Ég vil hjálpa okkur að komast
aftur í úrvalsdeildina því það er þar sem við eigum heima," bætti Jerome við.