Fotbolti.net
01.06.07 - 12:25
Magnús Már Einarsson

Stuart Parnaby til Birmingham (Staðfest)

Stuart Parnaby til Birmingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Nýliðar Birmingham í ensku úrvalsdeildinni hafa fengið Stuart Parnaby frá Middlesbrough en hann hefur gert þriggja ára samning við félagið eftir að hafa hafnað nýju samningstilboði frá Boro.
Þessi 24 ára gamli leikmaður er fjölhæfur en hann var fastamaður í hægri bakverðinum hjá Middlesbrough í byrjun síðasta tímabils. Hann missti hins vegar sæti sitt í liðinu á síðari hluta tímbailsins.

Aston Villa, Everton, Sunderland og West Ham voru einnig á eftir Parnaby sem hefur leikið allan sinn feril með Middlesbrough fyrir utan tvo mánuði þar sem hann var í láni hjá Halifax. Hann skoraði alls fjögur mörk í 127 leikjum með Boro.

,,Það er kominn tími fyrir mig að byrja upp á nýtt hjá nýju félagi og ég ákvað að fara til Birmingham eftir að hafa hitt Steve Bruce," sagði Parnaby.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.