Fotbolti.net
01.06.22 - 20:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Perry: Mikilvægt að ná inn marki í fyrri hálfleik

Auglýsing
Perry: Mikilvægt að ná inn marki í fyrri hálfleik
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Þór/KA vann sterkan 3-2 sigur á Keflavík á SaltPay vellinum á Akureyri í kvöld. Perry Mclachlan, annar þjáflara Þór/KA mætti í viðtal hjá Fótbolta.net eftir leikinn.

„Maður er ánægður þegar maður nær í þrjú stig. Þetta var erfiður leikur, stelpurnar börðust í gegnum hann og spiluðu góðan fótbolta á köflum. Ég er mjög ánægður og stoltur," sagði Perry.

„Þetta var kaflaskipt, við þurftum bara að ganga úr skugga um að við myndum nýta góðu kaflana okkar. Það var mjög mikilvægt að ná inn marki fyrir lok fyrri hálfleiks."

Aðspurður af því hver skilaboð þjálfaranna voru í hálfleik sagði hann:

„Hafa þetta einfalt, spila einfalt. Einnig voru skýr skilaboð til öftustu línunnar að stíga aðeins upp."

Liðið hefur verið að spila með þrjá miðverði í undanförnum leikjum en spilaði með tvo í dag. Hvers vegna?

„Við þurftum fleiri leikmenn fram á við til að styðja við framherjana. Við höfum verið mjög varnarsinnuð, að fara í fjögurra manna línu leyfði okkur að styðja við fremstu leikmennina," sagði Perry.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.