Fotbolti.net
01.06.25 - 13:45
Brynjar Ingi Erluson

Hetja Sunderland gengin í raðir Brighton (Staðfest)

Hetja Sunderland gengin í raðir Brighton (Staðfest)
Canon

Mynd: Brighton

Brighton gekk í dag frá kaupum á enska táningnum Tommy Watson frá Sunderland.
Enskir fjölmiðlar greindu frá samkomulagi Brighton við Sunderland í apríl og hafa skiptin nú verið staðfest af félögunum.

Watson er 19 ára gamall vængmaður sem spiaði þrjú tímabil með Sunderland í B-deildinni.

Stuðningsmenn Sunderland eiga honum mikið að þakka eftir að hann kom inn á sem varamaður og skoraði markið sem sendi liðið aftur upp í úrvalsdeildina í úrslitaleik umspilsins á Wembley á dögunum.

Kaupverðið er 11 milljónir punda og skrifaði Watson í dag undir fjögurra ára samning við Brighton.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.