Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 14:24
Brynjar Ingi Erluson
Ísak Bergmann í Köln (Staðfest)
Ísak spilar í Bundesligunni á næsta tímabili!
Ísak spilar í Bundesligunni á næsta tímabili!
Mynd: Köln
Íslenski landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson er genginn í raðir FC Köln frá Fortuna Düsseldorf.

Ísak Bergmann er 22 ára gamall Skagamaður sem hefur spilað í atvinnumennsku síðustu sex árin.

Hann lék einn leik með ÍA í Inkasso-deildinni árið 2018 áður en hann hélt til sænska félagsins Norrköping þar sem hann lék í þrjú tímabil.

Árið 2021 samdi hann við FCK í Danmörku og vann dönsku deildina í tvígang og bikarinn einu sinni en hann hefur eytt síðustu tveimur tímabilum hjá Fortuna Düsseldorf í Þýskalandi.

Fyrra tímabilið var hann á láni frá FCK og voru skiptin gerð varanleg síðasta sumar eftir frábæra frammistöðu og hélt hann áfram á sömu braut á tímabilinu sem var að klárast.

Alls kom hann að 33 mörkum í 69 leikjum sínum með liðinu í deild- og bikar.

Köln greiðir 5,5 milljónir evra fyrir Ísak sem skrifaði undir fimm ára samning eða til 2029.

„Ég er ótrúlega ánægður með að hafa samið við lið eins og Köln og geta spilað í Bundesligunni á næsta tímabili. Ég get ekki beðið eftir að finna fyrir ótrúlega andrúmsloftinu á RheinEnergie-vellinum á heimaleikjum okkar og hjálpa liðinu með mínum gæðum. Ég er ótrúlega þakklátur fyrir traustið sem félagið setti á mig og get ekki beðið eftir að komast af stað,“ sagði Ísak á heimasíðu félagsins.

Köln vann B-deildina í Þýskalandi á nýafstöðnu tímabili og mun því spila í Bundesligunni á komandi leiktíð. Thomas Kessler, yfirmaður íþróttamála hjá Köln, er í skýjunum með að hafa landað Ísaki.

„Þróunin hefur verið mjög jákvæð hjá Ísaki síðustu ár og hann er klár í að taka skrefið í Bundesliguna. Hann er kraftmikill hlaupari og leikmaður, fjölhæfur á miðsvæðinu og kemur með þessi fótboltalegu gæði sem við vorum að leitast eftir til að bæta við hópinn. Við erum mjög ánægðir með að hann hafi valið FC Köln,“ sagði Kessler.


Athugasemdir
banner