Man Utd orðað við McAtee - City horfir til Lyon - Tveir frá Liverpool í skiptum fyrir Wirtz? - Partey til Barca
   sun 01. júní 2025 16:00
Brynjar Ingi Erluson
Mainz kaupir markahæsta mann Union (Staðfest)
Mynd: Mainz
Þýska félagið Mainz festi kaup á framherjanum knáa Benedict Hollerbach frá Union Berlín í dag.

Hollerbach, sem er 24 ára gamall, var markahæsti maður Union í deildinni á tímabilinu með 9 mörk, sem var annað tímabil hans í efstu deild.

Framherjinn ólst upp hjá Bayern München og Stuttgart, en spilaði aldrei keppnisleik með aðalliðunum.

Hann spilaði í C-deildinni með Wehen Wiesbaden í þrjú tímabil áður en Union tók sénsinn á honum fyrir tveimur árum.

Mainz hefur nú sótt þennan skemmtilega leikmenn frá Union fyrir 7,5 milljónir evra og gerði hann fjögurra ára samning við félagið í dag.

Mainz hafnaði í 6. sæti þýsku deildarinnar á tímabilinu og tókst að tryggja sér sæti í Sambandsdeild Evrópu fyrir komandi leiktíð.


Athugasemdir